DANFINChinaBook Here

Um Hvamminn

Hvammur sem í þá tíð hét Skálholt var reistur árið 1926 af þeim Jóni J. Brunnan (1884-1963) og Sigurði Ólafssyni (1882-1945). Hvammur var portbyggt steinhús með rúmgóðum kjallara. Framan af var Hvammur heimili Jóns og Sigurðar og jafnframt vinnustaður. Jafnan var mannmarg í Hvamminum eða Skakkanum eins og hann var kallaður og voru bjuggu þar auk vertíðarfólks sem bjó þar í lengri eða skemmri tíma venslafólk húsráðenda og menn sem störfuðu við útgerðina.

Árið 1959 fengu Árni Stefánsson og Þórhallur Dan húsið til afnota og hófu þar sinn hótelrekstur með Hótel Skálholt. Árni og Þórhallur ráku hótelið til 1964 þegar þeir hófu byggingu Hótel Hafnar. Eftir það var Hvammur notað sem verbúð fyrir farandverkafólk sem kom til Hafnar og var húsið í algerri niðurníðslu allt þangað til Tryggvi Árnason tók sig til 1989 og gerði húsið upp í þá mynd sem það er í nú í dag.

Í dag er Hvammur í eigu Halldórs Birgissonar og Cristiane Oliveira og hafa þau rekið gisitheimili þar síðan 1999.